Krafta logo

Þú færð heildarmynd af rekstrinum

Krafta sameinar beiðnir, verkefni, tímaskráningu, vettvangsgögn, samþykktir og uppgjör. Frá fyrstu beiðni til lokaðs verks.

Þegar gögnin fylgja ekki vinnunni

Þá tapast yfirsýn, ábyrgð verður óskýr og tími fer í að elta upplýsingar sem hefðu átt að vera á réttum stað frá byrjun.

Þörf á að elta upplýsingar

Tímar, gögn, ákvarðanir og athugasemdir eru enn í símum, póstum eða hjá einstaka fólki.

Upplýsingar koma of seint

Verkstjórar og stjórnendur eyða tíma í að finna hvað er búið, hvað vantar og hver ber ábyrgð.

Verkefni fara yfir kostnað

Þegar tími, efni, akstur og vinna eru ekki tengd við rétt verk tapast sýn á kostnaði.

Erfitt að halda góðri yfirsýnin

Þú sérð vandamálið eftir að það er orðið dýrt, tafir eða farið að hafa áhrif á viðskiptavin.

Samþykktir og ábyrgð óskýr

Þegar breytingar, ákvarðanir og samþykktir eru ekki skráðar verður erfitt að rekja hvað var ákveðið.

Gögnin eru á mörgum stöðum

Gögn liggja í Excel skjölum, möppum, tölvupóstum, símum og ýmsum kerfum. Staðan óskýr og meiri tími fer í leit og handavinnu.

Construction worker using Krafta on a tablet at a building site

Krafta tengir vinnuna við reksturinn

Gögn skrást þar sem vinnan gerist og fylgja verkefninu. Stjórnendur sjá stöðuna, skrifstofa fær betri gögn og uppgjör verða einfaldari.

Allt á einum stað

Skýr staða, betri gögn og minni handavinna allt frá fyrstu beiðni til lokaðs verks.

Beiðnir sem verða að verkum

Taktu við beiðnum, stofnaðu verk og fylgdu ábyrgð, stöðu og næstu skrefum á einum stað.

Samskipti sem týnast ekki

Öll samskipti á réttum stað svo allir sjái stöðuna og ekkert týnist

Skýr ábyrgð á hverju verki

Stýrðu hver má vinna, samþykkja, breyta eða aðeins lesa á hverju verki.

Kostnaður og uppgjör

Tengdu tíma, efni, akstur og gögn við verk svo uppgjör verði hraðara og minna farið á milli kerfa.

Skipulag og mönnun

Sjáðu verkefni, mannafla og álag svo rétt fólk sé á réttum stað á réttum tíma.

Tími og skráning

Skráðu tíma, mætingu, akstur og aðrar lykilupplýsingar beint þar sem vinnan gerist.

Bóka kynningu

Hvernig nýtist Krafta þínu hlutverki

Mismunandi hlutverk þurfa mismunandi yfirsýn.
Krafta sýnir rétt gögn fyrir rétt fólk.

Færð betri stjórn á rekstrinum

Krafta hjálpar þér að sjá stöðu verka, ábyrgð, kostnað og frávik fyrr. Þú sérð hvað er í gangi, hvað vantar og hvar þarf að bregðast við.

Sérð fyrr hvað er að fara úr skorðum
Færð skýrari mynd af tíma, framvindu og kostnaði
Færð Betri grunn fyrir ákvarðanir og eftirfylgni
Eyðir minni tíma í að elta stöðu og upplýsingar

Sérð stöðuna fyrr og eltir minna

Krafta hjálpar þér að halda utan um verk, fólk, stöðu og gögn á einum stað. Þú sérð hvað er búið, hvað vantar og hver ber ábyrgð án þess að þurfa að elta allt í símtölum og skilaboðum.

Sérð tíma, myndir og athugasemdir á réttu verki
Sérð stöðu og frávik fyrr
Verk, fólk og verkefni á einum stað
Heldur betur utan um framkvæmd dagsins

Einfaldari skráning og minna vesen í daglegri vinnu

Krafta hjálpar þér að skrá það sem þarf þegar vinnan gerist. Þú sérð hvað á að gera, hvar verkið er og getur skilað inn tíma, myndum og athugasemdum án óþarfa vesens.

Auðveld tímaskráning og stimplun
Sérð hvað á að gera og hvar
Setur myndir og athugasemdir beint á rétt verk
Minnkar líkur á að tímar eða upplýsingar gleymist

Færð gögnin tilbúin fyrr

Krafta hjálpar þér að fá réttu gögnin inn á verkið um leið og þau verða til. Þú þarft síður að elta tíma, kostnað, myndir, athugasemdir og samþykktir þegar kemur að eftirfylgni og uppgjöri.

Færð gögn fyrr inn á rétt verk
Þarft minna að laga eftir á
Færð betri grunn fyrir uppgjör og reikningagerð
Sérð skýrari rekjanleika í kringum verk, kostnað og samþykktir

Sjáðu hvernig Krafta einfaldar þinn rekstur

Við sýnum þér hvernig Krafta tengir saman beiðnir, verk, fólk, gögn og uppgjör í einu flæði. Án skuldbindingar.